Til að byrja með gekk vel að ákveða hvað umfangsefnið væri og fyrstu tímana nýttum við til að velja rannsóknarspurningu og að skipuleggja vinnubrögð. Áður en við byrjuðum að vinna í þessu verkefninu vorum við staðráðnir á því að við vildum taka viðtal við fólk sem sérhæfir sig á sviði meiðsla og hreyfingar. Þannig að eitt af því fyrsta sem við gerðum var að hafa samband við alla þá sem við vildum taka viðtal við. Við heyrðum í sjúkraþjálfurum, íþróttafræðingum, endurhæfingarlækni og kírópraktor. Öll heimildasöfnunin gekk út á það að taka viðtal við fagfólk og fá upplýsingar út frá þeim. Þá var stefna verkefnisins orðin ljós, við fórum að gera vefsíðuna og að búa til spurningarnar fyrir viðtölin. Við hönnuðum útlit síðunnar og sömdum spurningar fyrir hvern og einn einstakling sem við tókum viðtal við. Við tókum reglulega viðtöl inn á milli vinnunnar sem fór fram í skólanum. síðan unnum við alltaf jafnóðum úr viðtölunum við að skrifa niður það sem var sagt og að klippa myndböndin. Þegar við vorum komnir langt með verkefnið fórum við að pæla í einhverju sem við gætum haft til sýnis fyrir gestina. Við völdum að hafa líkan sem sýnir hvað gerist þegar fólk fær Brjósklos. Við bjuggum til tvo hryggjarliði úr frauðplasti, inn á milli þeirra settum við brjósk sem við gerðum úr við. Síðan boruðum við í gegnum liðina og höfðum lím í föstu formi sem mænu. Maggi smíðakennari hjálpaði okkur mikið með líkanið og við viljum þakka honum fyrir samvinnuna. Þegar það var ein vika eftir af verkefninu fórum við að skrifa niður lokaniðurstöðu rannsóknarinnar. Þá tókum við allt sem við lærðum frá viðtölunum og skrifuðum samfelldan texta þar sem við svöruðum rannsóknarspurningunni og öllum undirspurningum. Við lærðum mjög áhugaverða og mikilvæga hluti frá viðtölunum. En við lærðum einnig að nota sjálfstæð vinnubrögð sem nýttust okkur vel í þessu verkefni og vonandi enn þá betur á komandi árum.